Fræbrauð tilvalið í smurða brauðið.

Það er svo gott að fá sér smörrebröd á gamla mátann og þetta brauð er bæði tilvalið undir smjör og ost en eins fínni smurbrauð með roastbeef, eggjasalati og þessháttar. Uppskriftin er í nýjasta heilsublaði Nettó en birtist hér fyrst. Mæli með að prófa þetta próteinríka brauð sem er lágt í kolvetnum og að sjálfsögðu glúteinlaust.

Innihald:

  • 280 g möndlumjöl

  • 35 g hörfræ , gott að mala í blandara

  • 60 g sólblómafræ

  • 30 g hampfræ

  • 60 g graskersfræ

  • 1 tsk salt

  • 1 tsk lyftiduft

  • 3 stór egg

  • 500 g kotasæla

Aðferð:

  • Malið hörfræin og blandið síðan saman öllum þurrefnum til hliðar í skál.
    Setjið næst kotasælu og egg í blandarann og maukið þar til slétt og felt, blandið við þurrefnin og setjið deigið í form, gott að klæða það að innan með bökunarpappí
    Bakið í 60 mín á 180° og ágætt að setja álpappír yfir brauðið í lok bökunartímans svona 10 síðustu mín.
  • Látið kólna alveg og skerið svo niður. Ég smyr smurbrauð t.d.með íslensku smjöri, nota hangikjöt eða skinku á brauðið eða jafnvel roastbeef og skreyti með salati, spírum, kryddplöntum og soðnum eggjum. Herramannsmatur stútfullur af næringu og góðri fitu og hentar jafn vel í veisluna og í hádeginu.