Lumispa og Nuskin

Nú þegar aldurinn er aðeins að læðast upp að manni þá fer fólk á mínum aldrei ósjálfrátt að taka í handbremsuna og reyna að hægja á ferlinu. Ég hef ekki verið dugleg að nota sólarvarnir og oftast hafa kremin mín legið stillt í skúffunni og verið algjörlega ónotuð en þannig virka þau víst ekki. Ég hef nú tekið mér taki og er farin að hugsa betur um líkamann og umhirðu húðar, bæði andlits og kropps. Lumispa frá Nuskin er mín uppáhaldsgræja þessa stundina og hreinsar húðina svo dásamlega vel að mér finnst ég loksins vera að ná árangri. Ég þvæ mér með burstanum sem er úr silikoni og auðvelt að þrífa, tvisvar á dag en það tekur heilar 2 mínútur að endurnýja húðina kvölds og morgna og ég mæli eindregið með að prófa þessa snilld. Hvort sem þú notar farða eða ekki á safnar húðin okkar óhreinindum á degi hverjum. Góð húðumhirða er víst lykillinn að ljómandi og stinnri húð. Ég er að komast að því svo sannarlega. Hér er linkur á gott vídeó sem sýnir hvernig nota skal tækið. https://youtu.be/wCpVDAW_5pc

Ummæli frá ánægðum notanda Lumispa:

Vá hvað ég er að fíla þennan lumispa! Dagur 2 og manni líður ekkert smá vel í húðinni eftir hreinsun. Eins og hún vakni einhvern veginn og svo fresh. Svo er hreinsirinn svo mildur og þurrkar ekki og maður er ekki svona strekkt í húðinni eftir þetta! Geggjað ánægð með þessi kaup 🙂

Ég sjálf kynntist Nuskin vörunum fyrir ári síðan þegar ég keypti Lumispa græjuna og í upphafi fannst mér ég steypast út í bólum og hætti að nota fljótlega. Síðan lét ég reyna aftur á hana og þá kom auðvitað í ljós að það tekur smá tíma að losa út óhreinindin og nú finn ég mun á mér á hverjum degi. Ég er hægt og rólega að verða háð mörgum vörum frá Nuskin og mæli eindregið með að skoða úrvalið.

Hér er linkur https://mariakrista.mynuskin.com á mínar uppáhaldsvörur og hægt að versla beint af þeirri síðu en svo er smekkur fólks misjafn og um að gera að skoða það sem er í boði.

Það eru t.d. geggjaðir varalitir í boði sem eru bæði fáanlegir mattir og sanseraðir, þeir haldast ótrúlega vel á og eru bara geggjaðir. Ég er oft spurð hvaða gloss ég er að nota og hér er því uppljóstrað…

Þessi tónn er sanseraður og heitir Potential
Potential
Þarna er ég með mattan Explore og hann helst endalaust á manni.
Hér má sjá sýnishorn af möttu litunum.
Ef þið viljið þá get ég líka fundið þá liti sem þið viljið og sent ykkur link á það sem þið viljið og þið gangið frá kaupum.

Brúnkukremið og tannhvíttunartannkremið er að koma skemmtilega á óvart, tannkremið er gott á bragðið og sé ég strax mun eftir rúmar tvær vikur á litnum á tönnunum.

Brúnkukremið er ótrúlega fallegt á litinn og lyktin fljót að hverfa, festist ekki í fatnaði né rúmfötunum.

Brúnkugelið og Tannhvíttunartannkremið góða.

Ég á það skilið að hugsa vel um mig… og þú líka. Bestu kveðjur, María Krista.

Ef frekari spurningar vakna með hvernig er hægt að nálgast vörur eða aðstoð með einhverja hluti þá má hafa samband við mig. mariakristahreidarsdottir@gmail.com eða í síma 6901756