Ketópepp 10 ráð

Gleðilegt nýtt heilsuár !

Nú munu eflaust einhverjir hella sér í heilsuátak, hvort sem það er að kæla í klaka, æfa crossfit, hlaupa 100 km á mánuði eða taka á mataræðinu og ef þú lesandi góður ert spenntur fyrir ketómataræðinu þá eru hér nokkur ráð sem ég mæli með að lesa áður en þú byrjar. 

10 Ketóráð:

Nr 1.

Borðið einfaldan mat eins og egg, kjöt, avocado, álegg, fisk, smjör, sviðasultu, harðfisk og grænt grænmeti. Steikið stóra pönnu af grænmeti með smjöri, sveppum, tómötum, kúrbít, papriku, ólífuolíu. Notið svo prótín að eigin vali með hvort sem það er kjöt, kjúklingur eða fiskur.  Reynið að nota mest kolvetnaskertar mjólkurvörur. Ég er mjög hrifin af laktósafríum mjólkurvörum þar sem þær fara betur í magann og ég spara rjómann í kaffið en leyfi mér rjóma í vissa rétti og deserta í staðinn. Notið chiafræ, möndlur, hampfræ, kókoshveiti sólblóma-og graskersfræ í bakstur og haldið ykkur við hollar olíur eins og kókosolíu,ólífu- og avocadoolíu. Þetta mataræði er nefninlega mjög einfalt í grunninn. En ekki bíða, byrjið strax.

nr 2.

Fyllið magann af næringu, vatni og ef þið eruð slöpp (oftast sykur og bjúgur að skila sér úr líkamanum) þá mæli ég með súputening eða dufti t.d frá Knorr, eitt bréf í heitt vatn og smá smjörklípa, jafnvel harðsoðið egg, þetta er hin mesta orkubomba. Ekki gleyma svo vítamínum og lýsi eða góðum omega-3 olíum og svo má finna góðar steinefnatöflur í vítamíndeildinni sem hjálpa til við vökvaskort eða hreinlega notið salt á tunguna eða í vatnið.

nr 3.

Ég mæli með að fara varlega í uppskriftaflórunni fyrst um sinn. Það þarf alls ekki að baka flóknustu kökuna af blogginu mínu eða hjá öðrum ketógúrum né snúa heitustu uppskriftinni á internetinu í hollustuköku fyrstu vikuna. Leyfum sætindaþörfinn að hverfa áður en þið byrjið að finna staðgengla því það getur viðhaldið þörfinni ef við erum stöðugt að fá okkur sætuefni.

nr 4.

Náið tökum á nýja líferninu í litlum skrefum, reynið að hætta að borða eftir 19/20 á kvöldin sirka og verið dugleg að vökva ykkur. Einfaldar heimagerðar fitubombur og kókoskúlur er fínt að eiga, en eins og ég nefndi þá hinkrið með að kaupa allt sykurlausa súkkulaðið í búðinni þar til þið hafið náð tökum á sykurpúkanum. Þegar þið eruð orðin ketóaðlöguð er ekkert að því að grípa í sykurlausan súkkulaðimola og kökubita af og til og nota á “nammidögum”

nr 5.

Brie ostsneið og pepperoni eða salami getur slökkt hratt á sætuþörfinni, um að gera að prófa það. Drekkið ískalt vatn jafnvel sódavatn, smá edik út í eða sítrónusafi nammm. Ég mæli svo með að setja stórt glas af vatni á náttborðið, drekka áður en þið standið upp úr rúminu á morgnana. Hvílum mallakútinn aðeins lengur og lengjum föstuna. Ég brýt mína föstu með bulletproof eða eins kolvetnaskertum matvörum og ég get til að dagurinn byrji með jafnan blóðsykur og haldist sem lengst þannig.

nr 6.

Einblínið ekki of mikið á vigtina fyrst um sinn. Sumir missa mörg kíló af bjúg og vatni á fyrstu vikunum en alls ekki allir. Konur sem eru á breytingarskeiðinu kannast eflaust við að staðna á vigtinni og því getur verið mjög svekkjandi að stóla á vigtina þegar árangur er mældur. Hugsum frekar um heilsufarslega ávinninginn og skellið ykkur í blóðprufu, blóðið lýgur ekki. Tölur á vigt segja þér hinsvegar lítið um hvernig ástandið er á heilsunni þinni. 

nr 7.

Ekki byrja á ketó, lkl, duftkúrum, föstum, safakúr eða hvað sem það er af því að einhver segjir ykkur að gera það. Við þurfum að mæta í eigin persónu í vinnuna annars gengur dæmið ekki upp. Ekki láta heldur neinn annan hafa áhrif á hvað þú ert að gera fyrir þig, hvort þú ert kominn á nýtt mataræði eða hefur skráð þig í fjallaklúbb. Þú átt þig skuldlaust og ert að gera það sem þér finnst henta þér vel. Þinn líkami, þinn tími.

nr 8.

Það tekur jafnlangan tíma að borða soðið egg og einn kleinuhring en hversu lengi dugar orkan úr hvoru fyrir sig? Ekki flókið svar… hún dugar ansi stutt úr kleinuhringnum skal ég segja ykkur. 

nr 9.

Reynið að stunda hæfilega hreyfingu t.d. 30 mín á dag, sund, ganga, skokk, fjallaferð, golf, jóga, dans.. bara eitthvað til að koma blóðinu af stað. Engar öfgar samt því of mikið álag á kerfið getur haft þau áhrif að maður gefst upp á öllu saman.

nr 10.

Eitt að lokum, það er alveg sama á hvaða mataræði þið farið eða hvaða aðferð þið notið til að fækka aukakílóum eða bæta heilsuna, “það festist ekki” nema þú sért staðföst/fastur og viðhaldir góðum venjum í það minnsta 95% og það tekur um 21 dag að þróa nýjar venjur. Ef einhver dettur meðvitað af sporinu og fer aftur að úða í sig sykri og rusli þá er það ekki mataræðinu að kenna og þá þarf hreinlega að taka það á kassann og gangast við því með sátt í hjarta.  Hinsvegar er miklu auðveldara að halda sér á sporinu ef maður sleppir því bara að fá sér ruslfæðið sem maður veit að gerir líkamanum enga greiða. Ég hef komist að því að ef ég leyfi mér öðru hvoru þá dett ég fljótt í það og fyrir mig er miklu auðveldara að sleppa því bara alveg og njóta alls hins góða í mataræðinu sem gerir mér gott. Vellíðunina er ekki hægt að verðleggja og trompar allt sykurjukk í veröldinni. Trúið mér ég hef verið þar.