Hér er á ferðinni mjög einföld uppskrift. Þetta er ekta desert sem þú hendir saman ef þú átt von á gestum sama dag eða með stuttum fyrirvara. Bragðast eins og Royal búðingur og mjög fljótlegur með fáum innihaldsefnum. Mæli með að prófa.
Innihald:
250 ml rjómi ég nota laktósafrían
80 ml uppáhellt espresso sem er látið kólna
1 tsk vanilludropar
65 g fínmöluð sæta frá Sukrin Melis
6 msk kakó 4 msk í uppskriftina og 2 til að sigta yfir
200 g mascarpone ostur, t.d. MS ein askja
1/4 tsk salt t.d himalaya
Aðferð:
- Setjið allt í skál, þeytið í ca mínútu, skafið úr hliðum og þeytið aftur í ca 30-40 sek.
Dreifið í fallegar skálar, ég notaði 4 skálar og sigtið kakó yfir. - Gott er að kæla skálarnar áður en borið er fram. Það er svo gott. Eins mætti bera fram auka rjóma þeyttan en ekki nauðsyn.