Það er mikið búið að spyrja um uppskrift af leirnum sem við Alma föndruðum hér fyrir nokkru á instastory. Ég er með þessa uppskrift á jólaspjöldunum sem eru aðgengileg á Vinaklúbbnum undir Frí uppskriftaspjöld á pdf formi en ég ákvað að skella henni hér líka svo við getum dúllað okkur með börnunum á aðventunni. Þetta er súpereinfalt og skemmtilegt og mæli með að láta ímyndunaraflið leika lausum hala, þrykkja með blúndu, greinum, stimplum eða einhverju skemmtilegu.
aðferð:
- Hitið allt saman í potti á lágum hita. Þegar deigið fer að þykkna og hægt að hræra í kúlu þá er það tilbúið.
- Hnoðið deigið þegar það hefur kólnað aðeins og notið kartöflumjöl undir til að deigið festist ekki. Gott er að nota silikonmottu í þetta verk.
- Skerið út mynstur, stimplið, þrykkið blúndum eða greinum í deigið og færið tilbúin skraut á smjörpappír. Gott er að gera gat með sogröri ef hengja á skrautið upp í borða. Ég læt mitt skraut þorna sjálft yfir 1-2 daga og þannig verður það hvítt og fallegt.
![](https://mariakrista.com/wp-content/uploads/2020/11/123868458_1692170584295124_3422466825171299722_n-edited.jpg)
![](https://mariakrista.com/wp-content/uploads/2020/11/123763924_999499780527489_6004284302205984787_n-edited.jpg)
![](https://mariakrista.com/wp-content/uploads/2020/11/123768515_273375507410198_4597952498569950576_n-edited.jpg)