Það er nú hægt að gera allskonar útfærslur af hrákökum eða fitubombum og hér er ein sem er nokkuð fljótleg, eða allavega einföld. Ég var í smá viðtali hjá Evu Laufey og Svavari í Bakaríiinu á Bylgjunni og þar sem þau töluðu ekki um annað en kökuna sem Eva bakaði í gær þá langaði mig í eitthvað svipað. Þetta er mjög gott og ekki ósvipað hnetustykkjunum mínum en kannski ennþá auðveldara fyrir þá sem ekki nenna miklu brasi.
Innihald:
2 dl rjómi
50 g smjör
40 g Sukrin Gold
60 g Sukrin Gold sirup (um 3 msk )
50 g makadamiuhnetur
50 g möndlur
50 g heslihnetur eða möndlur
gróft sjávarsalt um 1/2 tsk
2 Sukrin súkkulaðistykki til að setja á toppinn
1 tsk kókosolía
aðferð:
- Hitið smjör í potti, bætið sætunni við og sírópi og hrærið.
- Hellið rjómanum saman við og hitið á meðalhita í 30 mín jafnvel 40 mín. Passið að hræra reglulega og haldið hita eins jöfnum og hægt er án þess að sjóði upp úr.
- Brytjið hneturnar smátt, má nota matvinnsluvél og hellið saman við karmelluna þegar hún er tilbúin, saltið. Hellið blöndunni í brauðform, best að nota silikonform. Frystið.
- Þegar búið er að frysta blönduna í 30 mín er hægt að hella bræddu súkkulaði yfir, gott er að hita Sukrin stykkin í örbylgjuofni og bæta við 1 tsk af kókosolíu til að mýkja upp. Hellið yfir, stráið smá grófu salti yfir ef þið viljið og frystið aftur.
- Skerið í aflanga bita og eigið í frysti þegar sykurpúkinn mætir á svæðið.