Þessi er ferlega einföld og góð og sniðug að baka tvöfalda ef maður vill gera skúffu og skera í litla munnbita.
Innihald:
100 g sæta, sukrin gold t.d.
4 egg
2 avocado medalstór
50 g kakó
2 tsk vínsteinslyftiduft
2 tsk vanilludropar
4 msk brætt smjör eða kókosolía ef þið viljið mjólkurlausa
Aðferð:
- Blandið öllu vel saman með matvinnsluvél, setjið í form klætt með bökunarpappír
- Bakið 25-30 mín á 175 gráðum, mér finnst svo gott að dreifa smá sykurlausu súkkulaði í bitum yfir síðustu 5 mínúturnar. Enn betra að skreyta svo með frostþurrkuðum jarðaberjum eða bláberjum í þegar kakan er að kólna, namm. Fæ frostþurrkuð ber á https://freezedry.is/
- Skerið í bita og njótið.