Month: nóvember 2020

Marengs með purusnakki

Já allt er nú hægt, ég varð að prófa að bæta purusnakki í marengs úr því ég er búin að gera súkkulaðinammi úr því, hrísbotna, pizzur og nota í rasp. Hví ekki setja það í marengs. Viti menn það kom vel út. Minnir á kornflextertu/babe ruth og auðvelt að græja. Setti rjóma á milli og […]

Efnaskiptavilla (Metabolic syndrome) og sykursýki 2

Efnaskiptavilla er heilkenni sem er notað til að lýsa líkamlegu ástandi sem getur leitt til alvarlegra sjúkdóma. Efnaskiptavilla er oftast til staðar hjá fólki sem er orðið of þungt en fólk í kjörþyngd getur líka verið með efnaskiptavillu ef ákveðin einkenni eru til staðar hjá þeim.  Kviðfita er alvarlegasta tegundin af líkamsfitu af því hún […]

Eggjafrittata svo einföld

Það er svo mikið af góðum uppskriftum á Cookidoo síðunni sem er hugsuð fyrir Thermomix eigendur og hér er ein sem ég útbjó mér í um daginn. Hún er einstaklega auðveld og ég breytti bara smá um ostategund og lauk en það má alveg leika sér með innihaldið eins og maður vill. Ég mæli með […]

Tromp toppar

Já það er líklega best að lýsa þessum þannig, ég er að nota möndlumjöl ( marsipanbragð) og lakkrísbita frá Good good svo í rauninni mætti kalla þessa Tromptoppa.. ekki satt. Það er afar auðvelt að skella í þessa og trikkið er svo að leyfa þeim að kólna vel á pappír áður en þeir eru losaðir […]

Súkkulaðieldfjall í Thermomix

Súkkulaðisyndin ljúfa, það kannast einhverjir við hana ekki satt. Hér er hún gerð í Thermomix en það má líka gera hana með handþeytara að sjálfsögðu. Þessi uppskrift miðast við 4-6 manns, fer eftir stærðum á formum sem þurfa að vera eldföst. PrintInnihald:180 g sykurlaust súkkulaði180 g smjör2 eggjarauður2 egg75 g sæta20 g kókoshveiti Prin Print […]

Mjúkar karamellur og “dajm” í TM6

Jæja enn ein útgáfan af karamellu en þessi er gerð í Thermomix 6 og ég er pínu að plata vélina svo ég geti hitað á hæstu stillingu en samt notað sykurlausa sætu og breyti því aðeins. Þið veljið Toffee uppskriftina eða Karamellur sem eru í Grunnuppskriftaflokknum og setjið bara það hráefni í sem ég tel […]

Vikumatseðill nr 10

Hér kemur tíunda vikan og þú getur halað niður þessum matseðli, prentað út og sett á ískápinn eða geymt í símanum eða tölvu. Matseðill vikuna 9 – 15. nóvember Hér fyrir neðan eru linkar á allar uppskriftirnar á blogginu sem passa í matseðilinn. Kúrbítssúpa Túnfisksalat Fylltar paprikur Kúrbítspasta Carbonara Chilikjúklingur […]

Múslí með jólakeim

Það er hægt að græja allskyns múslí og úrvalið er orðið svo gott af hráefni til að nota í stað sykurs, hunangs og síróps svo um að gera að búa til sitt eigið. Það kostar lítið og alltaf gott að eiga til að setja á skyr, gríska jógúrt eða þessvegna ofan á fallega köku. Uppistaðan […]

Saltleirsföndur

Það er mikið búið að spyrja um uppskrift af leirnum sem við Alma föndruðum hér fyrir nokkru á instastory. Ég er með þessa uppskrift á jólaspjöldunum sem eru aðgengileg á Vinaklúbbnum undir Frí uppskriftaspjöld á pdf formi en ég ákvað að skella henni hér líka svo við getum dúllað okkur […]

Súkkulaðichia með mascarponemiðju

Þessi réttur getur verið morgunmatur en hentar líka sem eftirréttur. Chia fræ eru sannkölluð ofurfæða og stútfull af vítamínum, kalki og prótíni. Í þessum rétt er chiafræjum blandað saman við möndlumjólk og sykurlaust síróp og borið fram með mascarponeblöndu sem gerir svo fallega lagskiptingu. Einföld uppskrift sem er bæði hægt að borða með fljótandi rjóma […]